Dimma ilmkerti

URÐ

Dimma ilmkerti

Verð 5.850 kr
Stykkjaverð  per 

Dimma táknar haustið og aukna dimmu. Ilmurinn er kraftmikill, kryddaður og ávaxtaríkur. Hann vekur minningar um skógarferð, nýfallin rauðbrún haustlauf og berjamó. Ilmurinn samanstendur af ávöxtum, kryddi, barrtrjám og villtum berjum.

URÐ kerti eru búin til úr blöndu af hágæða soja- og bývaxi. Kertin eru hönnuð og pökkuð á Íslandi en gerð í Frakklandi. Brennslutími er 40-45 klukkustundir. Kertin eru fáanleg í fjórum árstíðabundnum ilmum. Kertin bera íslensk nöfn, lýsandi fyrir hverja árstíð.